| Ólögleg verslun með lyf á netinu færist í vöxt |
| Sunnudagur, 25. Janúar 2009 14:11 |
|
Á síðustu árum hefur netverslun færst mjög í vöxt á öllum sviðum og þar með talin verslun með lyf. Svokölluð lífstílslyf eru til sölu á netinu á mun lægra verði en eftir hefðbundnum, löglegum leiðum. Einnig færist í vöxt að önnur lyf séu föl á netinu. Líkur eru á því að meira en helmingur þeirra lyfja sem boðin eru á netinu séu fölsuð. Í þróunarlöndum hagnýta lyfjafalsarar sér þörfina fyrir lífsnauðsynlegum lyfjum s.s. lyfjum við malaríu og eyðni. Sænska ríkisstjórnin hefur falið lyfjastofnuninni þar í landi að upplýsa fólk um hættuna sem fylgir því að kaupa lyf á netinu. Upplýsingaherferðin er m.a. fólgin í auglýsingum í dagblöðum, sjónvarpi og á netinu. Í tengslum við herferðina sem ber nafnið „Crime Medicine” hefur verið opnað vefsvæði www.crimemedicine.com.
94% netapóteka hafa ekki starfandi lyfjafræðing |
