facebook

Ónógur svefn er hættulegur
Miðvikudagur, 26. September 2007 22:16

svefn.jpgAð sofa of lítið getur verið lífshættulegt. Samkvæmt nýrri rannsókn, sem gerð var í Bretlandi, eru helmingi meiri líkur á því að fólk fái hjarta og æðasjúkdóma ef það sefur of lítið.

Í rannsókninni voru svefnvenjur 10.308 manns skoðaðar yfir 20 ára tímabil. Það kom í ljós að þeir sem sofa innan við fimm tíma á sólahring í lengri tíma, eru í helmingi meiri hættu en þeir sem sofa sjö tíma eða meira. Þetta kemur fram á fréttavef Berlinske Tidende í dag.

www.dv.is 26.09.2007

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066