| Óperutónlist fyrir hjartað |
| Miðvikudagur, 24. Júní 2009 09:19 |
|
Rétta tónlistin hér er óperutónlist og þá vegna þess, að takturinn í henni er yfirleitt hægur. „Nessun Dorma“ með Pavarotti er t.d. á við margar dýrar pillur. Í ljós kom, að þegar tónlistin vex að styrk, verður hjartslátturinn hraðari og blóðþrýstingur hækkar. Þegar styrkurinn minnkar og takturinn verður hægur, slaknar líka á hjarta og blóðþrýstingi. Undir þetta taka ýmsir frammámenn í samtökum hjartasjúklinga. Segja þeir, að framfarirnar séu miklu meiri hlusti fólk á fallega og rólega tónlist. |
