facebook

Orsök háþrýstings kann að vera í heilanum
Sunnudagur, 15. Apríl 2007 00:00
heilathversnid.jpgRannsóknir vísindamanna við Bristolháskóla á Englandi benda til þess, að orsakir hás blóðþrýstings sé að finna í heilanum en ekki vegna truflana á starfsemi hjartans, nýrans eða æðakerfisins.

Segja vísindamennirnir, að þessar niðurstöður kunni að leiða til þess, að fundnar verði nýjar aðferðir til að meðhöndla háþrýsting.

Vísindamönnunum tókst að einangra prótein, JAM-1, sem virðist hafa áhrif á hvítu blóðkornin og trufla blóðflæði. Það geti valdið bólgum og leitt til þess að súrefni berst ekki í nægum mæli til heilans. Það valdi síðan truflunum á líkamsstarfsemi, sem leiðir til hækkandi blóðþrýstings.

mbl.is.15.04.2007

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066