| Óþarfi að hræðast hjartaþræðingu |
| Föstudagur, 06. Nóvember 2009 00:00 |
|
„Ég var með sömu hugmyndir og allir að þetta væri einhver hryllingsaðgerð og ég get alveg viðurkennt að ég svaf nú ekkert mikið nóttina áður," segir Reynir. Hann segist jafnframt hafa verið farinn að íhuga hvort hann ætti að skrifa eitthvað hjá sér í síðasta sinn. „En það var í rauninni algjörlega óþarft," bætir hann við. Reynir fékk að fara heim samdægurs af spítala. Hann þarf að taka því rólega á næstu dögum en mun svo mæta aftur til starfa á DV eftir helgina. www.visir.is 06.11.2009 |
