| Óttast áhyggjur ef hann veit eitthvað um hjartagjafann |
| Laugardagur, 10. Október 2009 10:59 |
|
„Ég veit í raun ekkert um hana fyrir utan að ég veit að þetta var yngri manneskja en ég. Ég vil ekki vita hver þetta var því þá gæti ég farið að hafa áhyggjur,“ segir Jóhannes í viðtali við helgarblað DV. Aðspurður hvernig sjálfsmynd Jóhannesar sé þegar hjartað sem hann fæddist með er ekki lengur inni í honum, heldur hjarta úr ókunnugri manneskju, segist hann ekki finna sterkt fyrir þessum vangaveltum núna. [...] Ég hef ekki talað við neinn sálfræðing eftir aðgerðina, og ég veit ekki til þess að það sé mælt með að forðast þessar hugsanir, en ég held að það sé allavega skynsamlegt fyrir mig. Ég er alltaf að loka eitthvað úti, þar á meðal þetta. Og auðvitað þarf maður að gera það. Nándin er orðin svo mikil af dánum manni.“ Lesið viðtalið við Jóhannes í helgarblaði DV. |
