| Rafræn samskipti verði efld |
| Fimmtudagur, 29. Janúar 2009 17:56 |
|
Stýrihópurinn var skipaður síðast liðið sumar, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu. Var hópnum falið að fjalla um þá möguleika sem liggja í rafrænum samskiptum í heilbrigðisþjónustunni einkum með tilliti til heilbrigðisnetsins og uppbyggingar rafrænnar sjúkraskrár. Í tilkynningunni segir:
„Fyrir hópnum lá það verkefni að gera tillögur um hvernig ná mætti fram stefnumiðum heilbrigðisráðuneytisins fyrir upplýsingatækni í heilbrigðisþjónustu næstu 5-8 árin og hvernig uppbyggingu rafrænnar sjúkraskrár skyldi háttað á Íslandi á næstu 3-5 árum. |
