| Rannsókn á tengslum kæfisvefns og hjarta- og æðasjúkdóma |
| Fimmtudagur, 13. Janúar 2011 00:00 |
|
Ábyrgðarmaður rannsóknarinnar er Þórarinn Gíslason yfirlæknir lungnadeildar Landspítala, s. 543 1000. Rannsóknin fer fram á lungnadeildinni á Landspítala Fossvogi. Hverjir geta tekið þátt? Karlar og konur á aldrinum 40-65 ára Þátttaka felur í sér læknisviðtal og skoðun við upphaf rannsóknar. Þáttakendur svara spurningalistum um heilsufar og svefn og gerð verður nákvæm svefnrannsókn. Dagsyfja, athygli og einbeiting verður metin með stöðluðum prófum. Tekin eru blóðsýni og þvagi safnað. Gerðar verða 24 klst blóðþrýstingsmælingar, mældur miðlægur blóðþrýstingur og hálsslagæðar ómaðar. Þá er gerð segulómskoðun af hjarta og kvið. Lungnastarfsemi er könnuð með blástursprófi. Þátttakandi þarf að mæta 6 sinnum. Allar rannsóknir eru þátttakendum að kostnaðarlausu. Frekari upplýsingar Starfsmaður rannsóknarinnar (Lovísa) í síma 543 6383 eða 824 0265 kl. 13:00-14:00 þriðjudaga til fimmtudaga eða í tölvupósti á netfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
