facebook

Rauðvín bætir lífið - a.m.k. hjá músum
Mánudagur, 07. Júlí 2008 10:37

raudvin_og_kona.jpgNiðurstöður nýlegrar rannsóknar leiða í ljós nokkuð sem margir hafa vitað árum saman - að rauðvínsdrykkja leiðir til betra lífs, þó ekki sé það endilega lengra.

Niðurstöðurnar benda til þess að efnið resveratrol, andoxunarefni sem finnst í rauðvíni, hægir á hrörnun í hjarta, beinum og augum. Ekki var hægt að sýna fram á tengsl við langlífi, sérstaklega ekki ef rauðvínsdrykkjan hófst eftir miðjan aldur.

Tilraunin var gerð á músum og er gerð í framhaldi rannsóknar frá árinu 2006 sem sýndi fram á að resveratrol, sem hægt er að finna í mat á borð við vínber og hnetur, bætti heilsu og jók lífslíkur eldri, of þungra músa.

Vísindamennirnir taka þó skýrt fram að rannsóknin var gerð aðeins á músum og er ekki víst að hægt sé að yfirfæra niðurstöðurnar beint yfir á mannfólkið. Heilsa þess stjórnist af mörgum mismunandi þáttum.

www.mbl.is 04.07.2008

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066