| Rauðvín fyrir hjartað? |
| Föstudagur, 23. Febrúar 2007 00:00 |
Rannsóknir hafa leitt í ljós að hófleg drykkja rauðvíns, eða eitt glas á dag fyrir konur og tvö glös á dag fyrir karla, minnkar hættu á hjartaáfalli á miðjum aldri um 30 til 50 prósent.
Einnig bendir ýmislegt til þess að rauðvínsdrykkja minnki hættu á að þeir sem þegar hafa fengið hjartaáfall fái það aftur. Þá hefur verið sýnt fram á að rauðvín kunni að auka hlut svokallaðs góðs kólesteróls í blóðinu á kostnað slæms kólesteróls. Meðaltíðni hjartaáfalla hjá Miðjarðarhafsþjóðum hefur einmitt reynst óvenju lág. Fréttin birtist í Blaðinu 23 febrúar 2007 |

