facebook

Ris og karlmennska
Þriðjudagur, 11. September 2007 11:31

gcug0522.jpgÁður en ég fékk hjartaáfall í febrúar 2003 þá kom það fyrir á ögurstundum að mér reis ekki hold. Það var umsvifalaust skrifað á frammistöðukvíða og ég hafði ekki sérlega hátt um þetta.

Síðustu árin fyrir hjartaáfall kom þetta þó oftar fyrir og féll mér þetta fremur þungt eins og gefur að skilja. Ég beitti ýmsum aðferðum til að finna út úr þessu vandamáli en allt kom fyrir ekki, hvað eftir annað þá brást risið og allt varð heldur tilkomuminna en áætlanir lögðu upp með.

Um þetta leyti safnaði ég kjarki, fór til heimilislæknis og sagði honum frá vanda mínum. Mér fannst þetta erfitt umræðuefni. Satt best að segja átti ég ekki von á svarinu sem ég fékk en hann mælti með því að ég léti tímann vinna með mér. Því lengur sem ég væri í sambandi þá lagaðist þetta og sagðist hann ekki sjá ástæðu til að láta mig hafa stinningarlyf til að ráða bót á litlu risi.

Eins og gefur að skilja var ég ekki sérlega kátur með þetta og fannst læknirinn ekki hafa mikinn skilning á ástandinu. Ég brást við með því að minnka umsvif verulega og koma mér helst ekki í þá stöðu að það reyndi á risið. Innst inni fannst mér samt eins og ekki væri allt með felldu en hafði ekkert fyrir mér í því.

Þann 9. febrúar 2003 fékk ég svo hjartaáfall. Að vera þrjátíu og sjö ára gamall og fá hjartaáfall var eitthvað sem ég hafði ekki reiknað með. Að verða fyrir slíku áfalli er eitthvað sem að tekur langan tíma að átta sig á. Þ.e. átta sig á því sem raunverulega hefur átt sér stað og hvaða hugsanlegar afleiðingar það hefði í för með sér. En einbeitum okkur að risinu.

Fyrst á eftir þá reis mér hold við og við og varð ég glaður og fannst að þrátt fyrir mikin skaða á hjartanu sem fylgdi mikil skerðing á þreki þá fannst mér það huggun að karlmennska mín var til staðar. Ennþá.

Fljótlega fór þó að síga á ógæfuhliðina og mér reis sjaldnar hold og þá lítið og stutt í einu. Ég nefndi þetta við hjartalækninn minn sem ég hafði á þessum tíma og hann lét mig hafa töflur til að prófa sem ég og gerði, þóttist ég nú nokkuð góður. Töflurnar áttu að gera það að verkum að í allt að 48 klukkustundir eftir inntöku ætti mér að rísa hold við örvun.

Það sem að aftur gleymdist alveg að taka með inn í dæmið var að blóðþrýstingur minn var afar lár og sveiflukenndur auk þess sem hann átti það til að falla við minnsta álag.

Þessi tilraun endaði niðri á bráðamóttöku og restin af helginni fór í það að liggja í rúminu og vona að blóðþrýstingurinn færi að þokast upp eftir því sem áhrifa rislyfjanna hætti að gæta.

Þetta varð mér ágætis lexía sem varð til þess að ég varð að endurskoða algjörlega samlíf mitt og minnar elskulegu unnustu.

Ég þurfti að æfa mig í nánd og þrátt fyrir að mér fyndist karlmennska mín ekki mikil á þessum tíma þá var það af orsökum sem að ég hafði ekki vald yfir að ráða fram úr. Þrátt fyrir að það kunni að hljóma klisjukennt þá varð ég að gjöra svo vel að vera jákvæður og sjá hvaða tækifæri fælust í því að þurfa nálgast maka minn með öðrum hætti.

Það mikilvægasta sem að ég komst að er að það er grundvallaratriði að hafa maka sinn með í öllum þessum vangaveltum sem koma upp þegar sú tilfinning grípur mann að karlmennskan sé farin og maður geti ekki notið ásta eins og maður.

Þegar frá leið og við höfðum unnið úr þessum erfiðu tilfinningum sem að oft komu upp á yfirborðið var komin tími til að taka næsta skref.
Blóðþrýstingurinn var búinn að jafna sig aðeins og féll ekki með eins dramatískum hætti eins og oft áður. Þetta gerði það að verkum að í samráði við minn hjartalæknir ákváðum við að prófa stinningarlyf sem hefur styttri verkunartíma en það sem ég prófaði fyrst.

Þetta virðist henta mér betur en ég verð þó að játa að ég nota þetta bara svona spari. Enda fylgja ofnæmiseinkenni og hausverkur notkun þeirra þó það sé nú þess virði. Ég og unnusta mín eigum í dag fallegt samlíf sem einkennist af meiri nánd og innileika en ég hef áður upplifað í mínu lífi.

Ég mæli með því að allir þeir sem eiga við stinningarvandamál að stríða tjái sig um það því það eru til lausnir. Og gildir þá einu hverjar orsakirnar fyrir lélegu risi eru.

Það er hinsvegar mikilvægt að gera sér líka grein fyrir því að ást milli tveggja einstaklinga snýst ekki um eða veltur á því hversu öflugt holdrisið er og karlmennska mælist ekki í risi.

Reykjavík 11.09.2007

Bjössi

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066