| Sækja um vinnu við hjúkrun |
| Þriðjudagur, 14. Október 2008 09:57 |
|
Vantaði 130 í haust Mannekla hefur lengi hrjáð Landspítalann. Í sumarlok vantaði um 130 hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða og var staðan þó betri en oft áður. Þá reyndist stjórnendum spítalans auðveldara að ráða fólk í sumarstörf sl. sumar en sumarið 2007. „Mín tilfinning er að sú að það sé talsvert betur mannað hér en fyrir ári,“ segir Anna.
Eitthvað er um að hjúkrunarfræðingar hafi hætt störfum við hjúkrun og fundið sér störf á almennum vinnumarkaði. Anna telur að þeir séu ekki margir og flestir hjúkrunarfræðingar, sem á annað borð séu á vinnumarkaði, starfi innan heilbrigðiskerfisins. |
