| Sænska gæðaskráningin hefur vakið heimsathygli |
| Sunnudagur, 02. Desember 2007 21:34 |
|
Með birtingu á niðurstöðum úr þessari yfirgripsmiklu skráningu hefur SCAAR vakið heimsathygli í umræðum um nýjungar í hjartalækningum og árangur þeirra, að sögn Þórarins Guðnasonar sérfræðings á LSH. Skráningin í SCAAR gefur t.d. möguleika á eftirfylgni varðandi langtímaárangur stoðneta við kransæðavíkkanir. Bandaríska lyfjastofnunin kallaði nýverið forsvarsmenn SCAAR til ráðgjafar um notkun stoðneta með hliðsjón af niðurstöðum gæðaskráningarinnar. Þá hafa greinar með niðurstöðum úr SCAAR einnig birst í virtustu læknatímaritum, t.d. New England Journal of Medicine. |
