| Sameina slysa- og bráðadeild |
| Miðvikudagur, 08. Júlí 2009 12:00 |
|
Þessi breyting hefur verið til umræðu innan spítalans undanfarna mánuði. Ekki hefur verið full eining um breytinguna. Þannig segir í ályktun frá hjúkrunarráði Landspítalans frá því í maí að ráðið hafi miklar áhyggjur af fyrirhugaðri sameiningu. Taldi ráðið verulegar líkur á að breytingin skerti þjónustu við sjúklinga og stefndi öryggi ákveðinna hópa þeirra í hættu. Hjartaheill lýstu sömuleiðis yfir áhyggjum af breytingunni.
Kostnaður við húsnæðisbreytingar, þjálfun starfsfólks og undirbúning, endurnýjun tækja og búnaðar og flutning er talinn verða um 230 milljónir króna. Hins vegar er áætlað að með því að sameina bráðamóttökurnar náist um 100 milljóna króna árlegur sparnaður. |
