facebook

Sameining Lýðheilsustöðvar og landlæknisembættisins undirbúin
Miðvikudagur, 10. Mars 2010 21:48
LandlaeknirUndirbúningshópur sem vinna mun að sameiningu Landlæknisembættis og Lýðheilsustöðvar fundaði í fyrsta sinn í heilbrigðisráðuneytinu í gær. Margrét Björnsdóttir, forstjóri Lýðheilsustöðvar, hefur með höndum verkstjórn í sameiningarferlinu og mun hún leiða þá vinnu sem framundan er í samráði við Geir Gunnlaugsson landlækni og starfsmenn heilbrigðisráðuneytisins.

Sameiningin er í samræmi við tillögu starfsnefndar um breytta skipan stjórnsýslu heilbrigðisráðuneytisins, sem skilaði skýrslu í janúar 2010. Stefnt er að því að ný stofnun taki til starfa 1. janúar 2011.

http://www.heilbrigdisraduneyti.is/frettir/nr/3206

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066