| Sameiningu frestað |
| Miðvikudagur, 29. Desember 2010 00:00 |
|
Stjórnarfrumvarp til laga um embætti landlæknis og lýðheilsu var lagt fram á Alþingi þann 11. nóvember síðastliðinn og hefur verið til umfjöllunar í heilbrigðisnefnd Alþingis. Vegna anna á þinginu tókst ekki að ljúka umræðu um frumvarpið fyrir þinglok þann 18. desember en verður haldið áfram strax á nýju ári. Stefnt er að því að afgreiða frumvarpið fljótlega á nýju ári og að embætti landlæknis og lýðheilsu taki til starfa ekki seinna en 1. mars næstkomandi. Landlæknir |
