| Samið við hjartalækna |
| Föstudagur, 02. Maí 2008 18:15 |
|
Með samkomulaginu þurfa sjúklingar einungis að greiða hjartalækni hlutdeild sína í hinum umsamda kostnaði við þjónustuna. Hjartalæknar fá mismuninn greiddan beint frá TR. Samkomulagið felur þannig í sér bæði umtalsvert hagræði fyrir hina sjúkratryggðu og minni kostnað. Samningurinn sem nú hefur verið gerður milli samninganefndar heilbrigðisráðherra og félags starfandi hjartalæknanna þýðir m.ö.o. að nú gilda sömu almennu reglurnar um greiðslur fyrir komur til hjartalækna og gilda fyrir komur til annarra sérfræðilækna.
Samningurinn gildir um alla hjartalækna sem voru í starfi í apríl 2008 og tekur til þjónustu sem veitt er utan sjúkrahúsa. Hafa læknar frest til 1. júní til að staðfesta aðild sína að samningum, en samningurinn gildir frá 5. maí 2008 til og með 31. mars 2010. |
