| Samkomulagi náð á Landspítalanum |
| Þriðjudagur, 03. Júní 2008 09:36 |
|
Deilur hjúkrunarfræðinga og geislafræðinga á Landspítalanum voru fyrirferðamikilar í fréttum í apríl. Um 100 hjúkrunarfærðingar og um 40 geislafræðingar hótuðu að segja upp störfum .1 maí vegna óánægju með fyrirhugaðar breytingar á vaktafyrirkomulagi. Degi áður en uppsagnirnar áttu að taka gildi var breytingum á vaktafyrirkomulagi hjúkrunarfræðinganna frestað til 1. maí á næsta ári en fram að því verður unnið að því að ná samkomulagi. Svipað samkomulag var gert við geislafræðinganna fjörutíu, en fresturinn þar var aðeins til 1. júní. Samkomulag í þeirri deilu náðist síðastliðinn fimmtudag.
|
