| Samráð skorti um skráningu líffæragjafa í ökuskírteini |
| Fimmtudagur, 25. Mars 2010 00:00 |
|
Frá og með 1. mars næstkomandi eiga bílstjórar að geta skráð í ökuskírteinið sitt hvort þeir vilji að líffæri úr þeim verði nýtt ef og þegar svo ber undir. Kristján Möller, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, sagði við Pressuna að ekki hefði verið eftir neinu að bíða, þetta væri vilji stjórnvalda og því hefði hann tekið þessa heimild með í reglugerðina um ökuskírteini þegar verið var að breyta henni hvort sem er. Árni Albertsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Ríkislögreglustjóranum, segir að embættið hafi sent ráðuneytinu fyrirspurn varðandi málið því að lögreglan hefði ekki komið að því á undirbúningsstigi og stæði frammi fyrir orðnum hlut.Á vissan hátt fögnum við því að afstaða fólks til líffæragjafar sé gerð ljósari en það eru ákveðnir þættir sem við hefðum viljað skoða betur og útfæra á annan hátt en gert er í reglugerðinni. Meðal annars er ætlast til þess, samkvæmt reglugerðinni, að lögreglan geymi gögn um líffæragjafana. Matthías Halldórsson aðstoðarlandlæknir tekur undir með lögreglunni um að reglugerðin veki upp ýmsar spurningar. www.pressan 25.03.2010 |
