facebook

Samvaxnar ei meir eftir aðgerð
Þriðjudagur, 24. Júlí 2007 00:00
b_180_180_16777215_0___images_stories_frettir_siamstviburar.jpgLÆKNAR í Kína skildu á sunnudag að fjögurra mánaða gamla samvaxna tvíbura en þetta var önnur aðgerðin af þessum toga sem framkvæmd var í landinu á viku. Um var að ræða stúlkur, þær fæddust fyrir tímann 15. mars sl. og vantaði í þær bringubein en lifrar þeirra og hjörtu voru samvaxin, auk brjóstholssvæðisins. Munu læknar hafa skilið lifrar þeirra að, fært hjörtun til og mótað bringubein. Þær voru í gær sagðar við góða heilsu en fyrstu þrír dagarnir eftir aðgerð sem þessa eru þó alltaf mjög hættulegir.

Morgunblaðið 24.07.2007

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066