facebook

Segir stjórnkerfið of stórt
Mánudagur, 21. Apríl 2008 11:04
hjartadeild4.jpgÞorbjörn Jónsson, formaður læknaráðs Landspítalans, gagnrýndi stjórnskipulag á spítalanum á fundi læknaráðs Landspítalans um helgina.

Stjórnkerfið segir hann of stórt og skil milli stjórnunarhlutverks yfirlækna og deildarstjóra ekki nægilega skörp. Miklar breytingar séu líklega í farvatninu á spítalanum auk þeirra sem á undan eru gengnar og vilji læknar og læknaráð vera í fararbroddi í þeim umræðum.

Þorbjörn segir umræðurnar hafa verið gagnrýndar á þeim forsendum að aðallega hefði verið rætt um stjórnunarhlutverk lækna. "Þetta var læknaráðsfundur hugsaður fyrir lækna þótt aðrir hafi verið velkomnir."

- kdk

Fréttablaðið 21.04.2008

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066