facebook

Setur reglur um transfitusýrur
Þriðjudagur, 09. Nóvember 2010 18:21

Jn_BjarnasonJón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að setja reglur um hámarksmagn transfitusýra í matvælum. Reglur á Íslandi verða að danskri fyrirmynd samkvæmt tilkynningu frá ráðuneytinu.

Rannsóknir sýna að neysla á transfitusýrum eykur líkur á hjarta- og æðasjúkdómum og eru í þeim efnum taldar mun skaðlegri en önnur fita.
Iðnaðarframleiddar transfitusýrur sem um ræðir myndast þegar olía er hert að hluta.

Danir hafa gengið á undan öðrum þjóðum með því að banna að magn slíkra transfitusýra í matvælum fari yfir 2. gr af hverjum 100. gr fitu. Nokkrar aðrar Evrópuþjóðir hafa nú fetað sig í sömu átt og í Bandaríkjunum og Kanada er skylt að geta um magn transfitusýra við merkingu matvæla.

Talið er að meðalneysla Íslendinga á transfitusýrum hafi farið lækkandi á undanförnum árum en jafnframt eru vísbendingar um að ákveðinn hluti fólks neyti meira af trans-fitusýrum en þau viðmið sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur birt.


www.visir.is 09.11.2010

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066