facebook

Síamstvíburar í Kína bíða aðgerðar
Þriðjudagur, 17. Júlí 2007 11:27
b_180_180_16777215_0___images_stories__frettir_kina.jpgSíamstvíburar sem fæddust í Kína bíða nú aðskilnaðar. Opinber fréttastofa Kína sendi í gær frá sér myndir af tvíburunum í fyrsta sinn, en sagði ekki til um hvort um stráka eða stúlkur væri að ræða. Tvíburarnir fæddust þann 15. mars síðastliðinn og fara brátt í aðgerð.
Þó er beðið eftir því að þeir verði þyngri til þess að auka líkurnar á því að báðir lifi aðgerðina af. Báðir hafa þeir meðfæddan hjartagalla. Þeir eru samvaxnar á brjóstkassa og kvið.

www.visir.is 17.07.2007

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066