| Sjónvarpsgláp er lífshættulegt |
| Miðvikudagur, 12. Janúar 2011 14:36 |
|
Vísindamenn hjá rannsóknardeild Lundúnarháskóla á faraldsjúkdómum og heilsu almennings komust að þessari niðurstöðu. Talsmaður rannsóknarinnar, Emmanuel Stamatakis, segir að nokkrir tímar fyrir framan skjáinn skapi mikla hættu. „Fólk sem dvelur lengi fyrir framan skjáinn, einkum við sjónvarpsgláp, er mun líklegra til að deyja og þjást vegna hjartavandamála. Okkar rannsóknir sýna að tveir eða fleir tíma auki hættuna mjög," segir Stamatakis. Ríflega 4.500 einstaklingar voru til skoðunar í rannsókninni. Megin niðurstaðan sýndi að 48 prósent meiri líkur eru á dauða eða hjartavandamálum hjá þeim sem horfa á skjá í meira en fjóra tíma á dag. |
