| Sjúkir og barnshafandi í forgang |
| Þriðjudagur, 25. Ágúst 2009 19:53 |
|
Í yfirlýsingu frá sérfræðingum á vegum ESB sagði að þeir sem sýndu alvarleg einkenni öndunarsjúkdóma, hjartasjúkdóma eða ofnæmissjúkdóma ættu að fara fremst í röðina. Niðurstaðan er leiðbeinandi fyrir ESB ríkin.
Að sögn sérfræðinganna er mikilvægt að hvert ESB ríki komi sér upp áætlun vegna bólusetninga við svínaflensunni. Sérfræðingar sambandsins hafa þegar sagt það óþarfa að loka skólum eða fresta opnun þeirra í því skyni að berjast við svínaflensuna. |
