| Sjúkratryggingafrumvarp samþykkt á þingi |
| Miðvikudagur, 10. September 2008 15:29 |
|
Þingmenn Vinstri - grænna og Framsóknarflokksins hafa lýst sig andsnúna frumvarpinu og sagði Ögmundur Jónasson, þingflokksformaður Vinstri - grænna, við umræður í dag að verið væri að knýja í gegn stefnu Sjálfstæðisflokks og hluta Samfylkingar um að einkavæða heilbrigðiskerfið. Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra sagði hins vegar að markmið frumvarpsins væri að allir Íslendingar ættu völ á heilbrigðisþjónustu á heimsmælikvarða. Þetta frumvarp myndi auðvelda það krefjandi eilífðarverkefni. Þá mótmælti Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður Samfylkingarinnar, því að í frumvarpinu fælust skert réttindi sjúklinga eða einkavæðing. Valgerður Sverrisdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins. sagði við atkvæðagreiðsluna að árangur lagasetningarinnar byggðist á framkvæmd laganna. Framsóknarflokkurinn væri ekki tilbúinn að taka ábyrgð á því hvernig framkvæmdavaldið færi með lögin og því hygðust þingmenn flokksins sitja hjá. Þá sagði Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, að verið væri að setja múlinn upp í Samfylkingarfólk á þingi og það væri heilbrigðisráðherra sem teymdi það í málinu. Samfylkingin væri gengin inn í Sjálfstæðisflokkinn í sumum málum Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri - grænna, benti á að aðeins einn af ráðherrum Samfylkingarinnar væri viðstaddur atkvæðagreiðsluna og hugsanlega væri einhverjum þeirra ekki eins rótt um frumvarpið og varaformanni flokksins. Sagði hann Vinstri - græn eru algjörlega andvíg markaðsvæðingu og einkarekstri í heilbrigðiskerfinu sem hér væri pakkað í silkiumbúðir. „Gróðahyggjan á hér eftir að vera lögmætt viðmið í heilbrigðisþjónustu á Íslandi," sagði Steingrímur.
Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra átti síðasta orðið og þakkaði hann þingmönnum fyrir starfið í kringum frumvarpið. Sagðist hann efast um að unnið hefði verið jafnvel að einu máli á þingi. Umræðan á þingi hefði verið upplýsandi með áberandi undantekningum og vísaði hann þar til orða Vinstri - grænna. Sagði ráðherra varhugavert þegar menn reyndu að gera ákveðna aðila innan heilbrigðiskerfisins og stjórnmálamenn tortryggilega. Í þessu frumvarpi hefði verið farið að ráðum færustu aðila. „Ég óska ykkur öllum til hamingju með þessa löggjöf," sagði heilbrigðisráðherra. |
