| Snarbrattur með nýja hjartað |
| Miðvikudagur, 02. September 2009 16:18 |
|
Hann gekkst í fyrrinótt undir hjartaígræðslu á Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg. Jóhannes er á gjörgæslu en verður fluttur á almenna deild á morgun. „Hann brosir nú hringinn og líður vel,“ sagði Halldóra Sigurðardóttir, eiginkona Jóhannesar en hún er með honum á sjúkrahúsinu. Jóhannes fékk alvarlegt hjartaáfall í byrjun júní. Til þess að bjarga lífi hans var flogið með hann til Gautaborgar þar sem grædd var í hann hjartapumpa til þess að halda hjarta hans gangandi. Síðan hefur hann beðið eftir nýju hjarta. „Það var hringt í okkur um fjögurleytið á mánudaginn og við vorum komin í loftið um hálfsexleytið. Jóhannes fór beint í aðgerðina þegar við komum til Gautaborgar eða um miðnætti að íslenskum tíma,“ segir Halldóra. „Ég fékk að fara í mjög snöggt bað og síðan beint á skurðarborðið. Aðgerðin gekk mjög vel og allt hefur gengið afar vel í kjölfarið. Ég fór tvisvar fram úr í dag og stóð í lappirnar,“ sagði Jóhannes. Læknarnir eru að sögn eiginkonu Jóhannesar mjög ánægðir með hversu vel aðgerðin tókst. Jóhannes var kominn á gjörgæsludeild um tólf klukkustundum eftir aðgerðina. „Hann var tekinn úr öndunarvél á miðnætti í nótt og vaknaði svo sjálfur síðar í nótt. Honum líður mjög vel og trúir því varla að þetta sé búið,“ segir Halldóra eiginkona hans. Jóhannes fer á almenna deild á morgun og síðan tekur við endurhæfing.
„Ætli þeir haldi mér ekki hér eitthvað áfram, a.m.k. meðan ég er á öllum þessum lyfjum,“ sagði Jóhannes Kristjánsson. |
