Sorg getur aukið líkur á hjartaáfalli, einkum og sér í lagi fyrstu dagana eftir fráfall náins aðstandanda, samkvæmt nýrri bandarískri rannsókn sem birt var í dag.
Rannsóknin náði til um tvö þúsund einstaklinga sem höfðu lifað af hjartaáfall. Niðurstaða hennar bendir til þess að þeir sem höfðu misst náinn ættingja væru ríflega tuttugu sinnum líklegri til þess að fá hjartaáfall fyrsta daginn eftir að aðstandandinn lést.
Næstu daga á eftir voru líkurnar sex sinnum meiri heldur en hjá þeim sem ekki höfðu þurft að sjá á eftir ástvini. En smám saman dregur saman með hópunum og eftir um það bil mánuð er ekki merkjanlegur munur á milli þeirra sem syrgja og annarra, samkvæmt rannsókninni en fjallað er um hana í riti bandarísku hjartasamtakanna, Circulation: Journal of the American Heart Association.