| Sparnaðaraðgerðir vega að þjónustu Landspítala |
| Mánudagur, 31. Mars 2008 17:19 |
|
Í yfirlýsingu segir, að erfiðlega hafi gengið að manna allar stöður sjúkraþjálfara og iðjuþjálfa á Landspítalanum undanfarin ár. Þar sé fyrst og fremst um að kenna lélegum launakjörum og miklu vinnuálagi. „Landspítalinn er flaggskip íslenskrar heilbrigðisþjónustu og þar er að finna mestu sérþekkingu allra heilbrigðisstétta. Það veldur því miklum áhyggjum þegar reynsla og sérþekking starfsmanna er ekki metin að verðleikum og spítalinn missir hæft starfsfólk til annarra starfa. Uppsagnir hjúkrunarfræðinga á svæfinga-, gjörgæslu- og skurðsviði vegna fyrirhugaðra breytinga á vaktafyrirkomulagi er gott dæmi um það.
Almenningur á Íslandi vill góða heilbrigðisþjónustu og hún verður ekki veitt nema með fullnægjandi mannafla. Það er því brýnt að gera átak í launamálum heilbrigðisstétta á Landspítalanum og fjölga nemum í heilbrigðisgreinum," segir m.a. í yfirlýsingunni. |
