| Spennandi tímar framundan |
| Föstudagur, 13. Mars 2009 10:54 |
|
„Í MAÍ flytur stofnunin í nýja byggingu svo það eru spennandi tímar framundan. Þar höfum við aðstöðu til líffæraígræðslna á heilli hæð og gott rými fyrir umönnun sjúklinga eftir aðgerðir. Það er ekki oft sem sjúkrastofnanir flytja í nýbyggt húsnæði og þetta verður aðstaða sem mun uppfylla hæstu gæðakröfur,“ segir Michael Olausson, sérfræðingur í líffæraígræðslum og yfirmaður ígræðslustofnunar Sahlgrenska sjúkrahússins í Gautaborg. Náist samningar milli stofnunarinnar og íslenskra heilbrigðisyfirvalda myndi biðtími íslenskra sjúklinga eftir líffærum styttast töluvert að sögn Olausson, yfirmanns stofnunarinnar. Olausson er vel þekktur frumkvöðull á sviði lifrarígræðslu í heiminum. Hann hefur m.a. þróað meðferð til að minnka áhættuna á því að líkami þegans hafni nýja líffærinu. Meðferðin felst í því að hluti af lifur líffæragjafans er græddur í lifur þegans, jafnvel þó hann bíði eftir ígræðslu á öðru líffæri en lifur. Lifrarbúturinn frá gjafanum virkar eins og sía og ekki verða jafnsterk mótefnisviðbrögð vegna nýja líffærisins. Hann segir það mikinn kost að sérfræðingar læri hver af öðrum í stað þess að hjartaígræðsla sé á einni deild, nýrnaígræðsla á annarri og engar samræður eigi sér stað. Stofnunin er sú eina á Norðurlöndum með þessu fyrirkomulagi en slíkt er einnig sjaldgæft í Evrópu. Þá er stofnunin sú eina á Norðurlöndunum sem sinnir öllum tegundum líffæraflutninga og jafnframt sú eina sem framkvæmir smáþarmaígræðslur. Hann segir fjölda íslenskra lækna starfa á Sahlgrenska en sjúkrahúsið hefur verið vinsælt meðal íslenskra læknanema. „Í Gautaborg er eitt stærsta samfélag Íslendinga á Norðurlöndunum og það er mjög gott samskiptanet þeirra á milli,“ segir Olausson. Hann segir kosti þess ótvíræða fyrir sjúklinga sem þurfi að leita til annarra landa í viðamiklar aðgerðir. Í hnotskurn» Heilbrigðisráðuneytið hefur fengið jákvæð viðbrögð frá þeim sjúkrahúsum sem sendar voru fyrirspurnir vegna mögulegs samstarfs á sviði líffæraflutninga.» Í næstu viku er von á teymi Háskólasjúkrahússins í Ósló en jákvætt svar hefur einnig borist frá Karolinska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi. » Á fyrstu fundunum er um kynningar á starfsemi stofnananna að ræða en á seinni stigum verður samið um verð þjónustu og annað. » Gert er ráð fyrir því að samningar við nýtt sjúkrahús náist á vormánuðum en samningurinn við Dani er laus tvisvar á ári. Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
