| Staða líffæragjafa könnuð |
| Fimmtudagur, 06. Desember 2007 13:27 |
|
Vinnuhópurinn var skipaður 28. nóvember 2007 og ber að skila skýrslu um málið eigi síðar en 1. apríl 2008. Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu segir að á vegum heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra sé einnig starfandi nefnd sem fjalli um líffæraígræðslur og var hún skipuð fyrr í haust. Nefndinni sé ætlað að vera ráðgefandi á sviði ígræðslu líffæra, safna saman upplýsingum um stöðu mála á hverjum tíma, svo sem fjölda líffæragjafa og líffæraþega, biðlista og biðtíma eftir líffæraskiptum. Nefndin skuli einnig gefa árlega skýrslu um hið norræna samstarf, sem fer fram á vegum Scandiatransplant. Þá skuli nefndin koma með tillögur til ráðherra um hugsanlegar breytingar á lögum eða reglugerðum sem varða málaflokkinn eftir því sem nefndin telur ráðlegast hverju sinni. |
