facebook

Staðreyndir um konur og hjartasjúkdóma
Föstudagur, 19. Október 2007 11:14
middle-age-couple-231508.jpgTíðni hjartasjúkdóma:

8,000,000 Bandarískra kvenna lifa með hjartasjúkdóma 10%  kvenna á aldrinum 45  - 64 og  25% 65 ára og eldri.
6,000,000 kvenna eiga sögu um hjartáfall og eða brjóstverki ( anginu ) eða bæði.
Nærri 13% kvenna 45 ára og eldri hafa fengið hjartaáfall.
435,000 Bandarískra kvenna fá hjartaáfall á hverju ári. 83,000 eru undir 65 ára aldri og  9,000 eru undir 45 ára aldri. Meðalaldur þeirra er 70,4 ár.
4,000,000 þjást af brjóstverkjum ( Angina ) og 47,000 þeirra voru lagðar inn á spítala 1999.

Dánartíðni:

Hjartasjúkdómar er helsta dánarorsök kvenna í Bandaríkjunum og 32% þeirra deyja á hverju ári úr hjartasjúkdómum.
  • 43% af dausföllum kvenna í Bandaríkjunum  á hverju ári eða nærri 500.000 má rekja til hjarta eða æðasjúkdóma.  
  • 267,000 kvenna deyja á hverju ári af völdum hjartáfalla. Hjartáföll valda dauða SEX sinnum fleiri kvenna en brjóstakrabbamein.
  • 31, 837 konur deyja árlega af hjartabilun ( CHF ) eða 62,6% allra þeirra sem að deyja úr hjartabilun.

    Samanburður við karla:
    • 38% kvenna og  25% karla deyja á fyrsta ári eftir fyrsta hjartaáfall sem er greint.
    • 35% kvenna og 18% karla sem lifa af hjartaáfall fá annað hjartaáfall innan sex ára.
    • 46% kvenna og 22% karla sem lifa af hjartaáfall eru með skerta strarfsorku vegna hjartabilunar innan sex ára..
    • Það eru meira en tvöfalt meiri líkur á því að konur deyi í hjáveituaðgerð heldur en karlar.
    • Það eru minni líkur á því að konur fái beta-blokkera, ACE blokkera eða jafnvel aspirin eftir að hafa fengið hjartaáfall. ( Ég er nokkuð viss um það þetta er ekki svona á Íslandi ).
    • Fleiri konur en karlar deyja árlega af hjartasjúkdómum þrátt fyrir þá staðreind að konur njóti aðeins:
      • 33%  hjartaþræðinga, stoðneta og hjáveituaðgerða
      • 28% gangráða og  
      • 36% opinna hjartaskuðraðgerða
    • Konur eru aðeins 25% þáttakenda í öllum hjartatengdum rannsóknum.

    Greinin er fengin af womenheart.org.
    Heimildir :National Center on Health Statistics; National Heart, Lung and Blood Institute; and American Heart Association's 2002 Heart and Stroke Statistical Update.

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066