| Starfsemi skurðstofa LSH í eðlilegu horfi |
| Fimmtudagur, 01. Maí 2008 21:13 |
|
Samkomulagið felur í sér að þær breytingar á vaktafyrirkomulagi sem fyrirhugaðar voru eru ekki lengur til umræðu og að núverandi fyrirkomulag gildi til 1. maí á næsta ári, nema að um annað verði samið. „Við ætlum að vinna að þessu máli með opnum huga og vona að það verði góður vinnufriður,“ segir Elín Ýrr Halldórsdóttir, talsmaður skurðhjúkrunarfræðinga. „Því það er ekki hægt að vera stöðugt í einhverjum átökum, það nennir því náttúrlega ekki neinn til lengdar.“ Spurð hvort hún hefði viljað að ráðherrann hefði komið fyrr að málinu svarar Elín Ýrr: „Ég hefði náttúrlega viljað að þetta mál hefði verið allt öðru vísi. En núna snúum við nefinu fram og reynum að vinna úr því sem við höfum og ég held að við höfum alla möguleika á að komast að einhverri góðri niðurstöðu.“ Erla Björk Birgisdóttir, trúnaðarmaður skurðhjúkrunarfræðinga, segir velflesta hjúkrunarfræðingana sátta við niðurstöðuna. „Við erum tilbúin að skoða það hvernig hægt er að fylgja þessari vinnutímatilskipun betur og fáum að taka þátt í þeim umræðum.“ Hún viðurkennir þó að hún hafi ekki verið bjartsýn fram eftir degi að þessi niðurstaða næðist. „En eftir aðkomu ráðherra að málinu og hans sáttarhönd þá jókst bjartsýnin.“ Hún segir samstöðu meðal hjúkrunarfræðinganna hafa orðið til þess að viðunandi niðurstaða náðist. „Þetta er ótrúlegt fólk sem ég vinn með, það var samstaðan okkar á milli sem skilaði þessum árangri. En samstaðan hefði ekki verið fyrir hendi ef ekki hefði verið svona mikið í húfi.“ Spurð hvort hún telji að samkomulagið nái að lægja þá ólgu sem er meðal hjúkrunarfræðinga á spítalanum svarar hún: „Við erum seinþreyttar til vandræða og ætlum ekki að erfa neitt við neinn. Við höfum alltaf óskað eftir vinnufriði og við teljum að þetta samkomulag sem við gerðum við stjórnendur sé grundvöllur til þess.“
Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra segir að þótt útlitið hafi ekki verið bjart í fyrrakvöld hafi hann alltaf haldið í vonina, verið bjartsýnn á að málið leystist þótt tíminn væri naumur, með það í huga að mál hafi oft fengið farsælan endi á síðustu metrunum. Margir hafi lagt hönd á plóg og samvinnan hafi skilað þessum árangri. |
