| Starfsfólk LSH að kikna undan álagi |
| Laugardagur, 22. Janúar 2011 00:00 |
|
Launagjöld eru stærsti útgjaldaliður spítalans en þau voru 1,2 milljörðum lægri árið 2010 en árið á undan og tekjuafgangur var 52 milljónir. Þannig hefur góður árangur náðst í tilætluðum sparnaði en það sama verður ekki sagt um ánægju starfsfólks með starfsumhverfi sitt. Á dögunum birtust niðurstöður könnunar sem gerð var meðal starfsfólks LSH síðastliðið haust, en þær sýna m.a. að mörgum þykir Landspítalinn ekki nógu aðlaðandi vinnustaður, starfsandinn sé ekki nægilega góður. Þá telja margir að umræðan sé ekki nægilega opin innan Landspítalans né að óhætt sé að gagnrýna það sem betur má fara. Orðin löng vertíð Líkja má ástandinu við vertíð sem engan enda tekur að sögn Elsu. Starfsfólk ráði við að taka á sig aukið álag í skorpum en þegar álagið sé orðið viðvarandi hljóti eitthvað að láta undan. Hún segist hafa áhyggjur af því að ástandið versni þar sem sagt hefur verið að fækka þurfi um 70-100 stöðugildi í viðbót. „Ef fækkar enn í mannaflanum þá heldur álagið áfram að aukast á þeim sem eftir standa, jafnvel þótt vonast sé til að þetta verði tekið út í starfsmannaveltu en ekki í uppsögnum.“ Í kjölfar niðurstaðna könnunarinnar sem lágu fyrir í byrjun janúar ákvað stjórn LSH að grípa til aðgerða til að minnka þreytu og álagseinkenni starfsmanna. Meðal annars verður efnt til tilraunar um stutta hvíldarstund, boðið upp á námskeið um líkamsbeitingu og starfsfólk hvatt til heilsuræktar.
|
