facebook

Stefnir í alvarlegt ástand á LSH
Miðvikudagur, 23. Apríl 2008 09:31

skurdhjukrun.jpgGrafalvarleg staða blasir við á skurðstofum Landspítalans hætti skurð- og svæfingahjúkrunarfræðingar störfum. Þetta segja hjúkrunarfræðingarnir og að ekki bendi til annars en að svo verði. Öryggi sjúklinga verði ekki tryggt með vaktabreytingum, heldur þvert á móti.

Þungt hljóð var í hjúkrunarfræðingum á skurðstofum Landspítalans á fundi þeirra í húsakynnum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga síðdegis. Tæplega 100 svæfinga- og skurðhjúkrunarfræðingar hætta störfum 1. maí þegar nýtt vaktafyrirkomulag tekur gildi.

Haft var eftir framkvæmdastjóra hjúkrunar í tíufréttum Sjónvarps í gær að með breytingunum væri verið að tryggja öryggi sjúklinga þar sem skurðstofur eigi að vera opnar um helgar. Þessu eru hjúkrunarfræðingarnir algerlega ósammála.

Umfjöllun fréttastofu sjónvarps má sjá hér

Sjá umfjöllun kastljóss um málið og viðtal við Önnu Stefánsdóttur forstjóra LSH hér

www.ruv.is 22.04.2008

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066