| „Stefnumótabíll“ kemur með lækni á vettvang! |
| Mánudagur, 10. Mars 2008 00:00 |
|
En nú hefur málið fengið nýtt sjónarhorn sem vonandi sættir hin ólíku sjónarmið. En hverju breytir þetta? „Við höfum þá tækifæri til að senda lækni frá bráðadeildinni beint á vettvang í völdum tilfellum. Tilvikum eins og þegar um endurlífgun er að ræða eða einhver er stórslasaður og fyrirsjáanlegt er að sá slasaði verður lengi á slysvettvangi vegna þess að hann er fastur í bílflaki eða undir öðru fargi.“ Hvenær kemur bíllinn? „Rauði krossinn, sem er rekstraraðili bifreiðarinnar, er búinn að fá hana og er að útbúa hana sérstaklega í þetta hlutverk, m.a. með tilliti til forgangsaksturs en auk þess eru einföld lækningatæki í bifreiðinni. Þessi bifreið er þó ekki hugsuð til sjúkraflutninga heldur sem farartæki læknis.“ Á þetta sér fyrirmynd erlendis? „Já, sérstaklega í Evrópu, þetta tíðkast bæði í Danmörku, Þýskalandi, Spáni og víðar.“
Leysir þetta að þínu mati þetta erfiða mál? „Ég hygg að með tilkomu „stefnumótabifreiðarinnar“ og breyttu skipulagi á vinnulagi innan slysadeildar muni allir aðilar geta við unað. Við erum alltaf að hugsa um öryggi sjúklinganna og við teljum að með þessu fyrirkomulagi sé það varðveitt.“ |
