facebook

Stjórn hjúkrunarráðs LSH ályktar um uppsagnir
Fimmtudagur, 13. Mars 2008 22:08

skurstofa.jpg"Stjórn hjúkrunarráðs Landspítala hefur haft til umfjöllunar uppsagnir nær allra hjúkrunarfræðinga innan svæfinga-, gjörgæslu- og skurðstofusviðs í framhaldi af uppsögnum sviðsstjóra á núverandi vaktalínum þann 31. janúar síðastliðinn. Á fundi sínum þann 11. mars var eftirfarandi ályktun samþykkt:

Hjúkrunarráð lýsir hér með yfir áhyggjum sínum af þeim afleiðingum sem uppsagnirnar munu hafa á öryggi sjúklinga, starfsöryggi hjúkrunarfræðinga svo og sérfræðiþekkingu innan skurð- og svæfingahjúkrunar. Ljóst er að ef uppsagnirnar koma til framkvæmda mun neyðarástand skapast þegar skurðstofustarfsemi lamast.
Hjúkrunarráð skorar á yfirstjórnendur að bregðast við nú þegar."

www.lsh.is 13.03.2008

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066