| Stórauknar lífslíkur eftir hjartastopp |
| Laugardagur, 04. Apríl 2009 08:53 |
|
Þetta kemur fram í nýrri könnun sem svæfinga- og gjörgæsludeild Landspítala (LSH) kynnir á ársþingi Skurðlæknafélags Íslands og Svæfinga- og gjörgæslulæknafélags Íslands í dag. Í könnuninni voru teknir fyrir sjúklingar eldri en 18 ára sem höfðu verið meðhöndlaðir með kælingu eftir að hafa fengið hjartastopp utan sjúkrahúss á síðastliðnum þremur árum.
„Við erum með tæki sem kælir sjúklingana eftir að stór æðaleggur er settur í nára sjúklingsins, þá fer kalt vatn um belgi sem liggja utan um æðalegginn og þannig náum við fljótt stöðugum kulda. Við kælum sjúklingana niður í 32°C, höldum þeim köldum í um einn sólarhring og hitum þá svo aftur upp í eðlilegan líkamshita á hálfum sólarhring,“ segir Felix Valsson, svæfinga- og gjörgæslulæknir sem stóð að könnuninni ásamt starfsfélaga sínum, prófessor Gísla H. Sigurðssyni, og Valentínusi Þ. Valdimarssyni læknanema.
„Þessi meðferð er nú að ryðja sér til rúms í heiminum og nú er mælt með henni í endurlífgunarleiðbeiningum Evrópska endurlífgunarráðsins,“ segir Felix.
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
