| Streita og hjartað |
| Miðvikudagur, 29. September 2010 11:54 |
|
„Hvaða áhrif hefur streita á hjartað?“ er mikilvæg spurning því streita er einn af áhættuþáttum hjartasjúkdóma. Streituvaldar eru í ýmsum myndum en erfitt hefur reynst að skýra og skilja hvernig mikil streita skaðar hjartað. Slík viðfangsefni eru mikilvæg þegar reynt er að auðvelda aðlögun að ýmiskonar streitu og auka streituþol. Rannsóknir voru gerðar á tilraunadýrum þar sem áhrif streitu, aldurs og fæðufitu á hjartavöðvann voru könnuð en þetta eru áhættuþættir hjarta- og æðasjúkdóma. Áhersla var lögð á efnasamsetningu í frumuhimnum í hjartanu. Þessar himnur eru mjög mikilvægar því allir flutningar efna til og frá frumum eða frumuhlutum fara í gegnum slíkar himnur og er stjórnað af próteinum sem hafa aðsetur í þessum himnum. Í þessum örþunnu himnum sitja fjöldi hormónaviðtaka sem taka við boðum sem berast t.d. með adrenalíni þegar þörf er fyrir hraðari og kraftmeiri hjartslátt vegna aukins álags eða aðsteðjandi hættu. Þar eru einnig önnur prótein sem annast flutninga efna inn eða út úr frumunni og þar eru ensím sem annast orkuflutninga o.s.frv. Himnurnar eru byggðar úr próteinum og ákveðnum tegundum fituefna sem nefnast fosfólipidar ásamt kólesteróli. Í þessum fituefnum eru m.a. fitusýrur, bæði mettaðar fitusýrur og einnig ómettaðar omega-3 og omega-6 fitusýrur. Þessi fituefni móta það umhverfi sem hormónaviðtakarnir starfa í og hefur þetta umhverfi mikil áhrif á starfshæfni þeirra. Ef þetta umhverfi í frumuhimnum breytist verulega hefur það áhrif á viðbrögð hjartans við örvun og streitu. Með aldri og fæðufitu breytist fitusýrusamsetning þessara himnuefna í hjörtum bæði manna og dýra. Einnig verða marktækar breytingar á fituefnasamsetningu himnuefna í heilanum með aldri. Áhrif streituhormóna á hjartað Eftir tveggja vikna gjöf streituhormóna líktist efnasamsetning í frumuhimnum því sem mældist í gömlum dýrum. Á vissan hátt virtist þessi streita valda hraðfara öldrun í þessum frumum en þessar breytingar gengu til baka að hluta þegar streituástandi var aflétt. Þegar álagið á hjartað var aukið með slíkum streituhormónum leiddi það oft til truflana á hjartsláttartíðni og til skyndilegs hjartadauða dýranna. Mataræðið eða fæðufitan hafði mikil áhrif á tíðni þessa skyndidauða. Unnt var að draga úr tíðni slíks skyndidauða með því að gefa dýrunum þorskalýsi eða omega-3 fitusýrur í fóðrið og auka þannig streituþolið. Áhrif streitu á nýbura Hið nýfædda ungviði aðlagast gjörbreyttum lífsskilyrðum. Það verða miklar breytingar á störfum og starfsháttum hjarta og lungna, breytingar verða á næringarefnaframboði þegar móðurmjólkin verður aðal efna- og orkugjafi og fleiri breytingar eiga sér stað. Aðlögun að þessum breyttu lífskilyrðum nýfæddra unga endurspeglast í breyttri samsetningu himnuefna í hjarta þeirra og líkist tímabundinni aðlögun að mikilli streitu og álagi. Ætla má að hliðstæðar breytingar verði í hjörtum nýfæddra barna fyrstu vikurnar. Strangur megrunarkúr veldur mikilli streitu Heimildir: Hér er getið heimilda til þess að menn geti kynnt sér efnið betur. Neonatal changes in fatty acid profile of phospholipids in rat heart muscle. Gudmundsdottir A, Gudbjarnason S. Biochim. Biophys. Acta. 1983; 752: 284-290. Fatty acyl chain composition in myocardial lipids in relation to age, diet, stress and coronary artery disease. Gudbjarnason S, Emilsson A, Hallgrimsson J, Gudmundsdottir A. In “Myocardial Ischemia and Protection”. Ed. H Refsum, P. Jynge, O D Mjös. Churchill Livingstone; 1983: 79-89. Reversible alterations in fatty acid composition of heart muscle membrane phospholipids induced by epinephrine in rats fed different fats. Benediktsdottir V E, Gudbjarnason S. J. Lipid Res. 1988; 29: 765-772. Fatty acid composition of phospholipids in heart muscle modified by age, diet, and stress. Gudbjarnason S, Benediktsdottir V E. CRC Handbook of Free Radicals and Antioxidants in Biomedicine. Ed. J Miquel, A T Quinanilla, and H Weber. 1989; 3: 67-74. Combined effects of age and dietary fat on beta 1-receptors and Ca2+ channels in rat hearts. Gudmundsdottir E, Benediktsdottir V E, Gudbjarnason S. Am. J. Physiol. 1991; 260: H66-72. Coregulation of adrenoceptors and the lipid environment in heart muscle during repeated adrenergic stimulation. Gudbjarnason S, Benediktsdottir V E. J. Mol. Cell. Cardiol. 1995; 27: 243-251. Effects of ageing and adrenergic stimulation on alpha 1- and beta-adrenoceptors and phospholipid fatty acids in rat heart. Benediktsdottir V E, Skuladottir G V, Gudbjarnason S. Eur. J. Pharmacol. 1995; 289: 419-427. |
