| Streita slæm fyrir hjartað |
| Mánudagur, 29. Október 2007 10:09 |
|
Á sex árum höfðu meira en tvö hundruð þeirra aftur tekist á við hjartavandamál og þeir sem unnu streituvaldandi vinnu voru helmingi líklegri en hinir til að verða veikir. Rannsóknir hafa einnig sýnt að þeir sem vinna streituhlaðna vinnu eru líklegri en aðrir til að fá yfirhöfuð hjartaáfall. June Davison hjartasjúkdómahjúkrunarkona hefur sagt í framhaldi af þessum niðurstöðum:
"Við þurfum að öðlast enn frekari skilning á því hvernig streita hefur áhrif á hjartað og blóðrásina. En þangað til getur skipt miklu máli að hver og einn finni út hvað það er sem eykur streitu hans og við þurfum að læra að takast á við streituhlaðnar aðstæður." |
