| Stutti spretturinn bestur |
| Fimmtudagur, 29. Janúar 2009 08:58 |
|
James Timmons, prófessor í Edinborg og maður sérfróður um áhrif áreynslu á líkamann, segir að það sé miklu hollara að þessu leyti að leggja mikið á sig í fáar mínútur en að puða í ræktinni klukkutímum saman. Hann leggur til að þeir, sem nota æfingahjól, taki fjóra ákafa 30 sekúndna spretti en hvíli sig á milli í nokkrar mínútur.
Timmons segir að á hálfum mánuði leiði þetta til þess að virkni insúlíns batni um 23%. Segir hann að þetta eigi við um fólk á öllum aldri og leggur til að ráðleggingar um hreyfingu verið endurskoðaðar. |
