| Styrkja hjartveik börn |
| Föstudagur, 16. Janúar 2009 09:02 |
|
Rennur óskipt til veikra barna Margrét segir að þegar Kvennadeild Rauða krossins hafi verið stofnuð hafi verið haldinn basar fyrstu árin í þeim tilgangi að safna fyrir bókum á sjúklingabókasöfn sjúkrahúsanna. „En nú liggur miklu færra fólk en áður lengi inni á spítala í einu, og þá er eðli málsins samkvæmt minna lesið af bókum þar. Þá ákváðum við að láta allt það fé sem safnast þegar við seljum vörurnar sem við búum til fyrir basarinn, renna til líknarmála sem snerta börn. Það er okkur mikil ánægja að geta látið gott af okkur leiða með þessu framlagi núna til Neistans, félags hjartveikra barna. Alls staðar er þörf fyrir peninga þar sem eru veik börn.“ Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
|
