| Styttri bið eftir hjartaþræðingum |
| Sunnudagur, 31. Ágúst 2008 10:26 |
|
„Okkur hefur tekist að setja í þetta kraft. Það voru settir svolitlir fjármunir í að vinna lengur á daginn og meira um helgar en einnig til að taka bráðatilvikin hraðar í gegn. Það hefur gert okkur kleift að kalla fleiri inn og nú erum við komin niður í um 170 sjúklinga á biðlista,“ segir Guðmundur Þorgeirsson, sviðsstjóri lækninga á lyflækningasviði. Afköstin hafa aukist verulega á undanförnum mánuðum og enn er útlit fyrir að hægt sé að gera betur.
„Við erum með tvær rannsóknarstofur og það hefur verið einn flöskuháls. Nú er verið að setja upp þriðju rannsóknarstofuna. Búið er að kaupa tækin og verið að breyta húsnæðinu.“ Á síðasta ári voru gerðar tæplega 1.800 hjartaþræðingar á Landspítalanum en 1.600 árið áður. Enn er reiknað með að þeim fjölgi á þessu ári, líklega í uppundir 1.900 þræðingar. Og ekki er útlit fyrir annað en að eftirspurnin haldi áfram að vaxa. Tvær ástæður eru fyrir því helstar. „Í fyrsta lagi lifa Íslendingar sífellt lengur og lengur,“ segir Guðmundur. „Og í öðru lagi lifa fleiri með hjartasjúkdóm.“ Afar vel gengur að meðhöndla bráðakransæðastíflur, s.s. með skyndilegri eða tafarlausri kransæðavíkkun eða -þræðingu. Sérstakri vakt er haldið úti allan sólarhringinn, árið um kring, og bráðakransæðastífla því nær ávallt meðhöndluð þannig. „Fyrir vikið eru miklu fleiri sem lifa með kransæðasjúkdóm og það kallar auðvitað á aukna þjónustu. Þetta fólk fær kannski sömu einkenni síðar, þannig að umfang þessrar starfsemi mun í eðli sínu, að öllum líkindum, halda áfram að vaxa.“
Vonast er til að rannsóknarstofan nýja komist í gagnið í nóvember eða desember.
» Árið 2006 voru gerðar um 1.600 hjartaþræðingar á Landspítalanum. Ári síðar voru þær komnar upp í tæplega 1.800.
» Í ár er gert ráð fyrir að hjartaþræðingar á LSH fari upp undir 1.900 og þeim haldi áfram að fjölga á næstu árum. » Um mitt ár í fyrra voru um 200 sjúklingar á biðlista eftir hjartaþræðingu. Með átaki hefur tekist að grynnka á listanum sem telur nú um 180 sjúklinga. Útlit er fyrir að hann styttist á næstunni. Eftir Andra Karl Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. Morgunblaðið 31.08.2008 P.S. Ég vil benda áhugasömum á pistil sem ég skrifaði hér inni á hjartalíf.is fyrir stuttu um "hugleiðingar um hjartaþræðingatæki" en pistilinn má sjá hér |
