| Styttri biðtími eftir hjartaaðgerðum |
| Föstudagur, 18. Júní 2010 12:06 |
|
Í fyrra var meðalbiðtíminn 4-5 mánuðir vegna hjartalokuaðgerða og 2-3 mánuðir vegna kransæðaaðgerða. Öll árin hefur áætlaður biðtími heldur lengst yfir sumarmánuðina, en í gegnum tíðina hefur biðtími verið lengstur eftir hjartalokuaðgerð sem ekki er flokkuð í forgangi, að því er kemur fram á vef heilbrigðisráðuneytisins. Í byrjun september 2008 voru alls 64 einstaklingar á biðlista eftir hjartaaðgerð. Á haustmánuðum ársins 2008 var gert átak og hjartaaðgerðum fjölgað upp í allt að átta aðgerðir á viku. 1. desember 2008 hafði fækkað um næstum helming á biðlistanum. |
