| Súkkulaði betra en ástríðufullir kossar |
| Þriðjudagur, 17. Apríl 2007 00:00 |
|
Frá þessu greinir fréttavefur BBC. Súkkulaðið olli meiri og langvinnari vellíðunaráhrifum en kossinn, og jókst hjartsláttur sjálfboðaliðanna um helming er þeir nutu súkkulaðisins.
Stjórnandi rannsóknarinnar segir að í mörgum tilvikum hafi áhrifin af súkkulaðinu varað fjórfalt lengur en áhrifin af ástríðufullum kossi. Fyrri rannsóknir hafi leitt í ljós að súkkulaði hafi geðvirk áhrif, en ef það fái að bráðna á tungunni kunni áhrifin að verða enn meiri. |
