facebook

Svona er hjartaáfall !
Þriðjudagur, 19. Ágúst 2008 10:47

bhf.gifBresku hjartasamtökin Bristish Heart Foundation hafa verið dugleg að koma boðskap sínum á framfæri með eftirtektarverðum hætti.

Síðasta árið hafa samtökin verið með í gangi herferð sem ber heitið"Doubth Kills" eða vafi gæti drepið.

19 júní í fyrra var herferðinni hrundið af stað með svokölluðum Chest Pain Awareness Day þar sem lögð var áhersla á að vafi um eðli brjóstverkja getur drepið fólk. Ekki taka áhættuna  heldur hringja frekar á 112.!

Nú í ágúst hófu samtökin mikla sjónvarpsherferð í Bretlandi þar sem því er lýst á afar áhrifaríkan hátt hvernig það er að fá hjartaáfall.

Um er að ræða tveggja mínútna mynd sem er mjög áhrifarík og ég hvet fólk til að skoða þetta og sýna þetta öðrum ef mögulegt er.

Tengillin á auglýsinguna er hér

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066