| Það er opinbert: Ísland er best í heimi |
| Mánudagur, 16. Júlí 2007 09:53 |
|
“Lönd eins og Ísland sýna fram á að hamingjan þarf ekki að vera á kostnað jarðarinnar,” segir Nic Marks, í samtali við breska blaðið Guardian. “Ísland sameinar sterkar félagslegar áhrslur og víðtæka notkun endurnýjanlegra orkugjafa og sýnir þannig fram á að við þurfum ekki að fórna mannlegri velferð til þess að lifa innan þess ramma sem umhverfismálin setja okkur.” Eins og oft áður raða Norðurlöndin sér efst á listann yfir þær þjóðir sem standa best. Svíþjóð er í öðru sæti, Noregur í þriðja, Sviss er í fjórða, Kýpur í fimmta og Danmörk í sjötta. Eisland er hins vegar í 30. og neðsta sæti, aðeins neðar en Lúxemborg, Búlgaría, Grikkland og Ungverjaland. Bretland í því 21., einu sæti neðar en Rúmenía. Andrew Simms, sem annaðist umhverfisrannsóknarþátt verkefnisins, segir að löndum sem leggja sterkustu áhersluna á markaðshagkerfi farnist verst í mælingunni. “Hvaða máli skiptir það að brenna jarðefnaeldsneyti í stórum stíl, og kaupa fleiri hluti og stunda meiri neyslu ef það virðist engu skipt fyrir velferð okkar?” spyr hann. Og í Guardian er því haldið til haga að Íslendingar nýti eigin endurnýjanlega orkugjafa og að ríkisstjórn landsins setji meira fé í heilbrigðisþjónustu en nokkuð annað land í Evrópu. |
