facebook

Tæknimenn lásu sjúkraskrár
Miðvikudagur, 28. Júlí 2010 00:00

Olafur_BaldurssonLandspítalinn notaði raunverulegar sjúkraskrár til að kenna á upplýsingakerfi sjúkrahússins. Persónuvernd hefur skoðað málið og mælt fyrir um að framvegis verði eingöngu notaðar „gervisjúkraskrár" til að kenna á upplýsingakerfið.

Tæknimenn notuðu aðgangsorð tveggja lækna til að komast inn í skrárnar. Í bréfi Ólafs Baldurssonar, framkvæmdastjóra lækninga, til Persónuverndar kemur fram að hvorki Landspítalinn sjálfur, siðanefnd spítalans né Landlæknir hafi talið þörf á að láta tiltekinn sjúkling vita að skrá hans hafi verið skoðuð því það hafi verið gert í lokuðu rými frammi fyrir eiðsvörnum hópi og sjúklingurinn ekki beðið skaða af því.

- gar

www.visir.is 28.07.2010

Facebook   
 
Hjartalif.is | bjorn@hjartalif.is  | Sími 496-1066