| Tæplega hálfs tonns maður lést úr hjartaáfalli |
| Miðvikudagur, 08. Október 2008 09:07 |
|
Sjúkraflutningamenn neyddust til þess að rjúfa vegginn á svefnherbergi Jose Luis Garza áður en þeim auðnaðist að koma honum út úr húsinu og flytja hann á pallbíl áleiðis að næsta sjúkrahúsi en hann var úrskurðaður látinn við komuna þangað. Dánarorsökin var hjartaáfall. Garza hafði ekki komist út úr rúminu í fjóra mánuði áður en hann lést og barðist þar við tvennt - að draga andann og borða. Garza hafði gert sitt til að vekja athygli á offituvandamáli sínu og meðal annars komið fram í fjölmiðlum. Hann var þó langt frá því að vera feitasti maður heims en sá heitir Manuel Uribe og býr, svo merkilegt sem það er, aðeins í klukkustundar fjarlægð frá heimili Garza. Uribe vegur 560 kíló og er kirfilega skráður í Heimsmetabók Guinness. Munurinn á þyngd þeirra félaga var 110 kíló sem samsvarar fullvöxnum manni og vel það. Uribe reyndi að bjarga vini sínum með því að senda honum ávexti á föstudögum. Það nægði ekki. |
