| Þakklátur læknum |
| Þriðjudagur, 21. Apríl 2009 00:00 |
|
En pólitíkin lætur ekki að sér hæða. Í stað málefnalegrar umræðu er iðulega snúið út úr orðum manna og reynt að sá fræjum vafa og úlfúðar. Kjarajöfnun verður að launalækkun í munni andstæðinga. Það er skrýtin upplifun fyrir mann sem varið hefur starfsævinni í að verja launataxtakerfið og starfskjör launafólks. Frá þeirri köllun mun ég aldrei hverfa! Því miður hefur verðbólga étið upp kjörin án þess að við hafi verið ráðið í kreppunni og við skipulagsbreytingar hafa margir misst spón úr aski - því miður. Þar hef ég hvatt til varfærni og að lágtekjufólki yrði hlíft og störfin varin. Verstar þóttu mér pólitískar útleggingar framkvæmdastjóra Læknafélags Íslands sem fóru um fréttanetin í síðustu viku: Heilbrigðisráðherrann væri mótdrægur læknum og í ofanálag rógberi sem skapaði ótta og óvissu! Tilefnið var umræða á málþingi þar sem ég sagði að skattaumhverfi og innbyggðir fjármálahvatar gætu haft áhrif á þróun heilbrigðiskerfisins. Í kjölfar yfirlýsinga framkvæmdastjórans hefur fjöldi lækna haft samband við mig til að afsaka þessi skrif, þau væru hvorki á þeirra ábyrgð né í þeim góða samstarfs-anda sem samskipti okkar hefðu einkennst af. Orð eigi ekki að leggja út á verri veg en þau eru meint. Fyrir þetta er ég þessum læknum þakklátur.
Höfundur er heilbrigðisráðherra. |
